9.3.05

Stundum borgar ofbeldi sig!

Ævintýrið um skrítna skordýrið:

Ég sá skordýr áðan, ógeðslegt skordýr (Er ég kerling af því mér finnst skordýr ógeð?).
Hljóp og sótti klósettpappír til að drepa það og náði því síðan í sigtið. Hætti á síðustu stundu við að drepa það. Í gæsku minni ákvað ég frekar að henda því út (djöfuls). Ég labbaði hægt og rólega að dyrunum en helvítis kvikindið ákvað að launa mér lífgjöfina með því að stökkva út af pappírnum.
Ég kaus frið og líf, en ég lít á þennan gjörning sem stríðsyfirlýsingu frá öllum skordýrum eins og þau leggja sig og mun ég ekki hika við að DREPA þau í framtíðinni.. Nú er einhversstaðar skríðandi um íbúðina mína afæta og ógeð sem ætlar að lifa frítt á mér í sumar væntanlega.. stundum borgar ofbeldi sig!

Eftir þessa reynslu skil ég heiminn betur...