10.3.05

fjórar staðreyndir VI

það er leikur að læra
að læra er t.d. að skrifa ritgerð
að skrifa ritgerð er leiðinlegt
það er leiðinlegt að leika

Ef að fyrsta fullyrðingin er rétt er sú síðasta kannski rétt. Ef svo er mundi það bylta heimsmynd minni. En kl. er þrjú að nóttu til. Þrjú er enginn tími til að bylta heimsmyndum. Það er tími til að fara að sofa.